Saturday, June 16, 2007

 

Gamli góði kjarninn?

.
Já strákar þetta var nú ansi skemmtilegt og langt spil núna síðast. Held næstum að við höfum sett met þarna. Sá illi snéri aftur og var nærri búinn að hrifsa til sín völdin af Eika en sá lét ekki bugast og endaði loks sem sigurvegari rétt um kl 2:00. Eiki varði því krúnuna og má því áfram teljast réttmætur konungur Catan. Freysinn hefði samt mátt taka þetta en hinn Illi sá sko sannarlega til þess að hann átti aldrei séns. Þó svo að Freysinn hafi endað með flestar hallir (7 kvikindi) þá vantaði töluvert uppá innkomu og stig til að hafa þetta. Jói Guð var hins vegar ansi nálægt þessu líka eins og vanalega en samt sá sá Illi sér ekki ástæðu til að gera neitt við því. Hef karlinn grunaðan um að taka því illa þegar ég hamast á honum. Ég vil þó meina að eðlilegt sé að menn styðjist við tölfræðina og reyni að hindra velgengni þeirra sem teljast lang líklegastir til sigurs. Þannig er það amk í blessuðum boltanum (eitthvað sem þið skiljið strákar) en þar eru menn teknir úr umferð sem teljast ógn eða hvað? Heheheh já Freysinn smá bitur en ekkert alvarlega, sáttur við að Vigfús hinn illi tók ekki 4. sigurinn á árinu (mínu markmiði náð amk í þessu spili). Lítið sást svo til Krissa the White og var heldur lágt á honum risið að þessu sinni. Sama má segja um Óla sem þó átti ágætar rispur en sökum ölvÚnar var frekar rólegt á þeim bæ mest allt spilið. Eitthvað hefur piltur sá skammast sín því ekkert hefur spurst til hans síðan spilað var en óstaðfestar fregnir herma að Óli sé nú á Íslandi að sleikja sár sín.

En já komum nú að því sem ég ætlaði að tala um :) Ég var að spá...mig langar svoooo mikið til að við tækjum eitt spil enn fyrir heimferð mína þann 27. Þá væri gaman að taka síðasta spilið með gamla góða kjarnanum (stofnendum) þeim Jóa, Rúnari, Fúsa, og Freysaling ásamt tveim heppnum úr röðum nýrra spilara. Jói fer heim í sumar og þar með verður aldrei hægt að endurtaka þetta. Hvað segja menn?

Comments:
Ég er laus á föstudag eftir að stelpurnar sofna og svo er ég laus á laugardagskvöld
 
Ég er líka klár fös. og laugardagskvöld
 
Sama hér!

Kv
Jói
 
Jamms ég er til þarna líka...vantar þá bara fúsann og svo er laust pláss fyrir einn stálheppinn.
 
Sælir drengir. Já, eftir svona svakalega útreið þá sá ég mér ekki annað fært en að yfirgefa land og þjóð og halda heim til Íslands í Catan æfingabúðir. Rosa gaman að vakna kl. 7, skelþunnur, pakka niður og keyra til Köben. Púff.
Mér líst mjög vel á þessi plön um spil, það væri mér sannur heiður að fá að taka þátt. En þar sem að ég hef nú ekki verið að gera gott mót síðustu skipti þá skal ég glaður víkja fyrir t.d. Eika 2x6 manna meistara eða Krissa undrabarni. Það væri nú saga til næsta bæjar ef að hann Eiki myndi vinna 3ja 6 manna spilið í röð ? Svakalegt. Jæja, við sjáum hvað gerist.
 
Jú þetta hljómar vel. Fös eða lau er lige meget fyrir mig. :-)
 
Sá illi hér, btw.
 
Post a Comment



<< Home

Eldra efni

March 2007   April 2007   May 2007   June 2007   July 2007   August 2007   September 2007   November 2007   January 2008   February 2008   March 2008   April 2008   November 2008   January 2009   March 2009  








This page is powered by Blogger. Isn't yours?