Saturday, March 31, 2007

 

Ég er fúllúr og fúll...blanda sem fer ekki vel saman!

Hér sit ég í dómarakotinu sár og fúllur með allt niðrum mig og veit ekki mitt rjúkandi ráð. Fúsi hinn Illi hefur unnið okkur enn einu sinni og verið er að stilla upp í næsta spil. Ég sé ekki ástæðuna því Fúsinn tekur þetta bara aftur....þetta er fyrir hann eins og mig að spila við Söru, Mána og Eika = ekkert mál :( En jú menn vilja reyna aftur og ég þarf víst að taka þátt því annars er talað illa um mig. Fúllur og sár með engan bjór eftir....ekki gaman og hvar er abbinn? Hann var þó alltaf til í tuskið og góður til að skrapa botninn með, en jújú hann er að eyðileggja líkama sinn í íþróttalekjum í sveitinni.! O sei sei lífið gæti verið betra akkúrat núna :(

Fúllur og fúll...ekki gaman!

Friday, March 30, 2007

 

Spil í Dómarahorninu

Freysi fær engu ráðið, þetta er Dómarhornið.

Það verður spilað á laugardag, leikar hefjast upp úr hálfníu eins og venjulega.
Líklegast verður þetta 5 manna spil svo Fúsakóróna er undir.

Bið menn að prumpa áður en þeir koma.
Ég hef einkarétt á því heima hjá mér.

Hugrún er líka að búa til leyniformúlur svo ég vinni.

Takið vaselínið með, ég er í formi eftir möööööööörg spil á netinu. Þið eruð ekkert betri en þessi botar.

Dómarinn

Monday, March 26, 2007

 

Laugardagur til lukku

Hvernig er laugardagurinn drengir?

Eru menn í stuði fyrir spil á mínum heimavelli þá?

Svarið í comment?

Dómarinn

Friday, March 16, 2007

 

Ekkert að gerast hérna?

Hvað segja menn? Hvenær er næsta Catan? Ég er kominn með alveg ósigrandi aðferð. Ég rústa þessu næst!

Ef það verður næst.

Saturday, March 10, 2007

 

Dagurinn er runninn upp

Jæja þá styttist í það...spilið hefst eftir nokkrar klst. Mikil spenna er í mönnum og sumir farnir að renna yfir kænskubragð kvöldsins. Hvernig fer þetta svo í kvöld? Þora menn að tjá sig um það eitthvað? Ég held amk að Guðinn taki þetta í kvöld ég veit ekki afhverju en Óli kemur líka sterklega til greina. Að sjálfsögðu mun ég berjast eins og úlfur en ég hef bara ekki trú á mér í kvöld....það er eitthvað með tunglið.

Thursday, March 8, 2007

 

Oft vinnur illur

...þá spilað er. :-D

 

Spil á laugardag

Spil á Old Abbford á laugardag.

Hvað gerist, vinnur Abbi sinn fyrsta sigur á heimavelli?
Verður níðst á Fúsanum?
Nær Ræpan sínum fyrsta sigri á árinu.
Eða fær Óli sinn fyrsta löglega sigur?
Þarf Freysi að stilla á stöðina sem Abbi er alltaf að horfa á?
Kemu Jói með Guddu með sér?

to be continued

Saturday, March 3, 2007

 

Þetta blogg!

Hugmyndin með að bjóða ykkur inn á þetta blogg er nú bara ef menn vilja tjá sig eitthvað um Catan. T.d. eftir síðasta spil eða næsta spil eða álíka. Það má líka bara skrifa níð um Vigfús eða einhvern annan sem vinnur allt of oft ;) HEHEH en alla vega tjáið ykkur endilega hér. Þetta er nú bara svona til gamans gert :D

 

Nýja síðan okkar komin í loftið!

Jamms þetta er nýja síðan okkar vei! Nú er svo bara spurning um hvenær næsta Catan spil verður og þá hvar? Eru menn með hugmyndir?

Eldra efni

March 2007   April 2007   May 2007   June 2007   July 2007   August 2007   September 2007   November 2007   January 2008   February 2008   March 2008   April 2008   November 2008   January 2009   March 2009  








This page is powered by Blogger. Isn't yours?