Saturday, March 3, 2007

 

Nýja síðan okkar komin í loftið!

Jamms þetta er nýja síðan okkar vei! Nú er svo bara spurning um hvenær næsta Catan spil verður og þá hvar? Eru menn með hugmyndir?

Comments:
Eftir síðasta spil hef ég hlotið mikla gagnrýni og sumir hafa bent á að ég hafi hjálpað núverandi meistara, Vigfúsi, við að sigra síðasta spil. Þetta er alfarið rangt og nú vil ég í eitt skipti fyrir öll leiðrétta þennan misskilning. Á ákveðnum tímapunkti í spilinu skipti ég við Vigfús í hlutföllunum 5-1, lái mér hver sem vill en þetta er hreinlega tilboð sem að enginn getur hafnað. Hinsvegar fékk Vigfús forskot á okkur hina þegar að við vorum að raða niður borgunum okkar. Staðgengill hans, Guðrún hans Jóa, ætlaði að setja borgina hans við höfn nokkuð utarlega á spilinu en því var mótmælt stranglega af öllum spilamönnum NEMA UNDIRRITUÐUM! Þarna vann Vigfús spilið og ég kom ekki nálægt því.
Núna tel ég mig vera búinn að hreinsa mig frá þessum dylgjum og get gengið með hreint orðspor í næsta spil.
Óli Helgi.
 
Post a Comment



<< Home

Eldra efni

March 2007   April 2007   May 2007   June 2007   July 2007   August 2007   September 2007   November 2007   January 2008   February 2008   March 2008   April 2008   November 2008   January 2009   March 2009  








This page is powered by Blogger. Isn't yours?