Friday, May 4, 2007

 

Catan í gær, Abbinn sullar yfir allt og Jói droppar sýru

Jamms það var tekið í spil í gær eins og flestir okkar vita :) Þetta var bara hið ágætasta spil. Í fyrstu leit allt út fyrir að um stutt og leiðinlegt spil væri að ræða þegar Eiki var á barmi sigurs eftir aðeins 2 klst keyrslu. Við náðum þó að berja dálítið á kauða og seinka sigri hans til kl 1:30 eða svo. Já Eiki karlinn Umma dró eitt stig í land í gær og sá gerði það bara með glæsibrag og án þess að vera vondur og leiðinlegur við okkur hina eins og sumir eiga það til að gera ;) Eiki átti þetta bara skilið. Rúnar sá svo um að halda botninum hreinum að vanda og Freysi (ég) sýndi gamla takta og náði næstum að stela sigrinum af Eika. Já það mátti ekki miklu muna en Eiki hafði þetta fyrir rest. Abbi var bara fúllúr en þó skemmtilegur að vanda og honum tókst meira að segja að sulla niður. Já Abbi var samur við sig og tók heilt glas af hinum ljúfa St. Feuillien Páska og sullaði yfir eldhúsgólf Óla dúfu. Þetta hafði vissulega sitt skemmtanagildi og það er það sem öllu máli skiptir. Jói átti líka ansi góð móment því maðurinn virtist vera á einhverju mjög sterku, eitthvað meira en bara lífshamingjunni einni saman. Karlinn vissi varla hvað snéri upp eða niður í spilinu og kom með hvert draumaklúðrið á fætur öðru. Við hefðum jú átt að vera drengir góðir og senda karlinn heim í ból til Guddu sinnar að sofa þetta úr sér.
Óli var svo bara Óli, góður og prúður og lúmskari en andskotinn sjálfur...honum tókst þó ekki að bæta 6 manna krúnunni við sína 5 manna að þessu sinni.
Vigfús já hmmm hvar var sá Illi? Jú hann var fjarri góðu gamni og kom þá bersýnilega í ljós hvaða mann hann hafði að geyma. Jú því um leið og Vigfús hinn illi er fjarri þá blómstrar Umman eins og blóm í eggi. Sá illi er hefur greinilega troðið á Eikanum fram á þennan dag en nú er komið nóg ef marka má Eldglampan úr augum Eika Ummu í gær þegar krúnan var hans. Karl er kominn með bragðið í munninn og nú verður ómögulegt að stoppa kvikindið. En já sem sagt fínt kvöld með góð úrslit.

Comments:
Það er svo mikið líf í ykkur strákar að 2 ára gamla pizzan undir rúmi má eiginlega bara skammast sín. Mikið er gaman að sjá hvað menn eru virkir ;)
 
Ætli ég verði þá ekki að rjúfa þögnina, ætlaði að vera löngu búinn að því en fann bara ekkert til að segja. Það lýsir nú best árangri mínum í síðasta spili, tómt vesen og endaði í síðasta sæti. En Eiki stóð sig vel, höndlaði pressuna, með frostlög í æðunum greinilega. Ég get ekki sagt mikið um frammistöðu Jóa og Rúnars, Abbi náði sér á flug og Freysinn var nú næstum búinn að hala inn sigrinum í lokin, lúmskur skratti.
 
Sælir drengir.
Takk fyrir gott spil, ekki veit ég hvort Vigfús hinn ílli hefur verid ad avegleida mig fram til tessa en tad gengur mun betur tegar hann er ekki á svædinu.
Er ekki spil fljótlega
Kvedja
Kóngurinn í 82
 
Þurfum að fara spila maður, það eru liðnir 3 dagar, 20 klst og 43 mín síðan síðast. Maður er farinn að finna sigurbragðið í munninum.. Er sko með nýtt plan ;)
 
Post a Comment



<< Home

Eldra efni

March 2007   April 2007   May 2007   June 2007   July 2007   August 2007   September 2007   November 2007   January 2008   February 2008   March 2008   April 2008   November 2008   January 2009   March 2009  








This page is powered by Blogger. Isn't yours?