Við skulum segja að ég mæti ef það verði spilað. Ég hef hingað til ekki misst af neinu spili...þori það bara ekki, er hræddur um að þið komist að því hvað það er ljúft að spila án mín :(
Óli da Gama mætir, var hann Vasco ekki annars vaskur sæfari ? Eftir þrautlausar æfingabúðir í online Catan mæti ég grimmur til leiks. Bot-arnir er búnir að kenna mér alls konar trix sem að ég kem til með að beita á ykkur. Mæti með Mikkeller IPA, Norrebro páska bock ásamt öðrum, held að þetta sé sigurblandan.
Uss, það er þrýstingur. Ég er í sumarbústað fram á laugardag. Ég ætti að vera kominn fyrir kveldið og þá mæti ég, en ef ekki þá verð ég bara konungur í útlegð. Sá sem vinnur verður þá bara að titla sig sem einhverskonar hershöfðingja sem fer fyrir leppstjórn á konungsríki mínu. Hvað varðar bjórburðinn þá verða það væntanlega einhverjar leifar úr sumarbústaðarferðinni. Kannski Bud Light og Pilsner Thy, hver veit?
Það staðfestist hér með að konungurinn mætir ekki. Við erum víst í þessum blessaða bústað fram á sunnudag. Kannski maður taki fjögurra manna Catan í bústaðnum og komi heim með tvo konungstitla.
# posted by Anonymous : March 28, 2007 at 12:14 PM
Ôss thad eru stór ord frá King Abbi! Svo thorir madurinn ekki ad mæta og verja titilinn :) En jamms svona er thad bara. Annars var ég ad spá hvort menn séu med hugmyndir ad nafni á Rúnarskoti ther sem spilad verdur á laugardag?
Dómarahornid er komid..eitthvad annad?
Café HugRúnar? Saurbær? Uppsveitir? Heima hjá Rúnari?