Það er svo sem ekki mikil hreyfing á þessari síðu, ég held að eftir að Óli flutti heim á klakan að þá hafi þessi síða dáið. Það var í raun bara ég og Óli sem nenntum að skrifa eitthvað inn hérna. En smá update, við erum sko aldeilis ekki hættir að spila ooonei. Við erum reyndar ekki búnir að spila Catan í laaangan tíma, nei nú eru komin ný spil eins og Puerto Rico sem við reyndar vorum farnir að spila fyrir nokkru síðan og svo nýja spilið King of Chicago sem er alveg ljómandi skemmtilegt spil. Já svona er nú það, núna á föstudaginn 14.11.2008 munum við svo endurvekja Catan heima hjá Freysanum. Úff það verður spennandi að sjá hvort maður muni reglurnar.March 2007 April 2007 May 2007 June 2007 July 2007 August 2007 September 2007 November 2007 January 2008 February 2008 March 2008 April 2008 November 2008 January 2009 March 2009